Skíðasamband Íslands kynnir með stolti þá keppendur sem munu keppa fyrir Íslands hönd á Vetrarólympíuleikunum í Milano–Cortina 2026, sem verða settir formlega á morgun, 6. febrúar.
Ólympíufararnir eru fjórir talsins og keppa í alpagreinum og skíðagöngu. Keppnir fara fram á þremur stöðum á Ítalíu: Bormio, Cortina og Predazzo.
Dagur Benediktsson (Skíðafélag Ísafjarðar) – skíðaganga karla
Elín Elmarsdóttir Van Pelt (Víkingur) – alpagreinar kvenna
Jón Erik Sigurðsson (FRAM) – alpagreinar karla
Alpagreinar karla fara fram í Bormio, alpagreinar kvenna í Cortina, en skíðaganga karla og kvenna fer fram í Predazzo.
Dagur Benediktsson var fyrsti íslenski keppandinn til að mæta í Ólympíuþorpið en hann kom á staðinn 31. janúar og hefur verið við æfingar síðan.
4. febrúar bættist Kristrún Guðnadóttir í hópinn í Predazzo.
Á morgun, 6. febrúar, kemur Jón Erik Sigurðsson til Ólympíuþorpsins í Bormio og 10. febrúar mætir Elín Elmarsdóttir Van Pelt til Ólympíuþorpsins í Cortina. Elín verður þó viðstödd opnunarhátíðina á morgun en heldur í kjölfarið til æfinga með liði sínu þar til hún innritast formlega í þorpið.
Dagur Benediktsson
8. febrúar – 20 km skiptiganga (10 km klassískt / 10 km frjálst)
febrúar – Sprettganga, klassískt
febrúar – 10 km frjálst
febrúar – 50 km klassískt
Kristrún Guðnadóttir
Jón Erik Sigurðsson
14. febrúar – Stórsvig
febrúar – Svig
Elín Elmarsdóttir Van Pelt
15. febrúar – Stórsvig
febrúar – Svig
Það verður sannarlega spennandi að fylgjast með íslensku keppendunum á stóra sviðinu. Hvetjum alla til að fylgjast með, en sýnt verður beint frá keppnum á RÚV.
Áfram Ísland!



