HM í Cortina 2021 - Allt sem þú þarft að vita

Heimsmeistaramót í alpagreinum fer fram í Cortina á Ítalíu þessa dagana. Níu íslenskir keppendur taka þátt í tæknigreinunum á mótinu. Um er að ræða undankeppnir í svigi og stórsvigi þar sem allir íslensku keppendurnir hafa þátttökurétt í báðum greinum. Úr undankeppninni í báðum greinum hjá báðum kynjum komast 25 efstu áfram að lokinni báðum ferðum. Þessir 25 fá því sæti í aðalkeppni í viðkomandi grein. Ef enginn íslenskur keppandi verður á meðal 25 efstu í undankeppninni er þó ekki öll von úti um að íslenskur keppandi fái þátttökurétt í aðalkeppni. Eftir undankeppnina verður úthlutað 25 auka sætum, eitt sæti á hverju þjóð sem hefur ekki náð inn keppanda í aðalkeppni. Samtals verða því 100 keppendur í aðalkeppninni þar sem 50 bestu í heiminum fara beint inn og þurfa ekki að fara í undankeppni.

Engin undankeppni verður í stórsvigi kvenna og því fara allar íslensku konurnar beint í aðalkeppnina í stórsvigi sem fer fram 18.febrúar.

Keppnisdagar hjá íslensku keppendunum (tímar miðast við íslenskan tíma):

  • 18. feb - Stórsvig karla, undankeppni - kl. 09:00
  • 18. feb - Stórsvig kvenna, aðalkeppni - kl. 09:00 / 12:30
  • 19. feb - Svig kvenna, undankeppni - kl. 09:00
  • 19. feb - Stórsvig karla, aðalkeppni - kl. 09:00 / 12:30
  • 20. feb - Svig karla, undankeppni - kl. 09:00
  • 20. feb - Svig kvenna, aðalkeppni - kl. 09:00 / 12:30
  • 21. feb - Svig karla, aðalkeppni - kl. 09:00 / 12:30

Hægt verður að fylgjast með útsendingum frá aðalkeppnunum á RÚV.

Keppnisstaðir

Heimasíðu mótsins má finna hér.
Úrslit og lifandi tímatöku frá má finna hér.

Minnum svo á samfélagsmiðlana okkar:
Instragram: skidasamband
Facebook: Skíðasamband Íslands