Hæfileikamótun snjóbretta - æfingarhelgi í desember fyrir öll fædd 2004-2010

Veturinn er loksins að nálgast og stefnir í frábæran vetur. Við ætlum að byrja hann með látum með æfingarbúðum á snjó helgina 8.-10.des á höfuðborgarsvæðinu (árg. 2004-2010). Byggt verður park sérstaklega fyrir þessa helgi og haldið verður session þrjá daga í röð. Þar verður tónlist, stemning, góður matur og allt sem snjóbrettafólk þarf til þess að njóta sín og ná góðum æfingum. Einnig hefur heyrst að stór nöfn í bransanum ætla að láta sjá sig til þess að æfa og gefa góð ráð. Gist verður í FRAM skálanum upp í Bláfjöllum. Þetta er helgi sem enginn vill missa af. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur inn á Facebook síðu Hæfileikamótunnar.

Verð: 20.000 kr greiðist við skráningu inn á 0162-26-3860 kt. 590269-1829 og tilgreinið fyrir hvern er verið að greiða.

Skráningarfrestur er til og með 5. desember. 

Skráning hér: Hæfileikamótun alpagreina - þrekhelgi | Skíðasamband Íslands (ski.is)