Hæfileikamótun í skíðagöngu

Þá er komið að samæfingu Hæfileikamótunar skíðagöngu fyrir 14-16 ára (fædd 2007-2009). Æfingin verður á Akureyri dagana 22. – 25. júní nk.

Mæting er fimmtudaginn 22. júní kl. 16 og æfingunni lýkur um kl. 14 sunnudaginn 25. júní. 

Gist verður í kennslustofum í skóla á Akureyri (erum að bíða eftir staðfestingu frá Akureyringum á því hvaða skóli það er).

Það þarf því að hafa með sér dýnu, svefnpoka/sæng og kodda.

Greiða þarf þátttökugjald kr. 20.000- inn á reikning SKÍ kt. 590269-1829 reikn. 0162-26-003860 um leið og skráning fer fram.

Tekið er við skráningum á netfangið ski@ski.is

Nánari upplýsingar og æfingaplan verður birt á facebook síðu Hæfileikamótunar SKÍ - Skíðaganga

Skráningarfrestur til og með 14. júní nk.