Góður árangur íslenskra keppenda á Heimsmeistaramóti unglinga í alpagreinum í Narvík

Heimsmeistaramót unglinga í alpagreinum fór fram í Narvík í Noregi dagana 5.–15. mars þar sem bestu unglingar heims í alpagreinum komu saman til keppni. Ísland átti átta keppendur á mótinu sem kepptu í stórsvigi og svigi.

Bestum árangri íslensku keppendanna náði Matthías Kristinsson, Skíðafélagi Ólafsfjarðar, þegar hann varð í 11. sæti í svigi, aðeins 1,34 sekúndum á eftir sigurvegaranum Giuliano Fux frá Sviss. Þetta er jafnframt besti árangur íslendings frá upphafi á Heimsmeistaramóti unglinga í alpagreinum.

Til gamans má geta að bestan árangur í stórsvigi á Heimsmeistaramóti unglinga á Björgvin Björgvinsson frá Dalvík þegar hann lenti í 12. sæti, +2.08 sek á eftir sigurveigaranum Benjamin Raich frá Austurríki í Frakklandi 1998.  

Í svigi karla varð Bjarni Þór Hauksson, Víkingi, í 27. sæti og keyrði sig upp um fjögur sæti á milli ferða, Arnór Alex Arnórsson, KR, var með rásnúmer 97 og lauk fyrri ferðinni í 59. sæti en náði því miður ekki að ljúka seinni ferðinni. Torfi Jóhann Sveinsson, Skíðafélagi Dalvíkur, náði ekki að ljúka fyrri ferðinni eftir að hafa byrjað ágætlega.

Í svigi kvenna stóðu íslensku keppendurnir sig vel. Elín Van Pelt, Víkingi, varð í 31. sæti, Sara Mjöll Jóhannsdóttir, Ármanni, í 32. sæti og Sonja Lí Kristinsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar, í 34. sæti. Þórdís Helga Grétarsdóttir, Víkingi, náði því miður ekki að ljúka fyrri ferðinni. Sigurvegari í sviginu var Anna Trocker frá Ítalíu, sem einnig varð heimsmeistari unglinga í stórsvigi.

Í stórsvigi karla varð Bjarni Þór Hauksson, Víkingi, í 30. sæti og Matthías Kristinsson, Skíðafélagi Ólafsfjarðar, í 33. sæti með rásnúmer 53. Arnór Alex Arnórsson, KR, endaði í 66. sæti en hann var með rásnúmer 92. Torfi Jóhann Sveinsson, Skíðafélagi Dalvíkur, náði því miður ekki að ljúka fyrri ferðinni. Sigurvegari í greininni var Rasmus Bakkevig frá Noregi. Bjarni Þór og Matthías náðu besta árangri Íslendinga í stórsvigi í yfir 25 ár.

Í stórsvigi kvenna náði Þórdís Helga Grétarsdóttir, Víkingi, bestum árangri íslensku kvennanna þegar hún endaði í 52. sæti með rásnúmer 86. Sara Mjöll Jóhannsdóttir, Ármanni, lauk fyrri ferð í 77. sæti en náði ekki að ljúka seinni ferðinni. Elín Van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir náðu ekki að ljúka fyrri ferðinni.

Þjálfarar í ferðinni voru Haukur Þór Bjarnason, landsliðsþjálfari, Kristinn Björnsson, þjálfari í NTG, og Arnór Gunnarsson.

Skíðasamband Íslands óskar keppendum og þjálfurum til hamingju með góða þátttöku og árangur á mótinu.