Góð byrjun á HM unglinga í Lillehammer

Heimsmeistaramót unglinga í norrænum greinum var sett í Lillehammer í Noregi í gær og hefur íslenska liðið lokið keppni í sprettgöngu.

Góð frammistaða í yngri flokki

Grétar Smári Samúelsson gerði mjög góða göngu og varð í 48. sæti og stórbætti punktastöðu sína í sprettgöngu. Hann var 12 sekúndum á eftir fyrsta manni í forkeppninni og einungis 4 sekúndum frá því að komast upp úr forkeppninni. Hjalti Böðvarsson keppti einnig í yngri flokki og endaði í 90. sæti.

Sjá úrslit hér

Framfarir í U23 flokki

Í dag kepptu eldri drengirnir í U23 flokki. Einar Árni Gíslason hafnaði í 57. sæti og Ástmar Helgi Kristinsson endaði í 69. sæti. Báðir bættu þeir sig verulega í punktastöðu og sýna jákvæða þróun sem lofar góðu fyrir framhaldið.

Sjá úrslit hér

Á morgun halda yngri drengirnir áfram keppni þegar þeir mæta til leiks í 20 km hópstarti.

Skíðasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis í komandi verkefnum.