Gauti og Sonja Lí íslandsmeistarar í stórsvigi 2026

Skíðamót Íslands í alpagreinum hélt áfram í dag í Hlíðarfjalli þar sem keppt var í stórsvigi. Veður var einstaklega gott og aðstæður mun betri en í sviginu í gær. Keppnin var mjög hörð og skemmtileg og oft á tíðum var mjótt á munum milli keppenda.

Í kvennaflokki var það Sonja Lí Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar sem átti besta tímann eftir fyrri ferð. Nýkrýndur íslandsmeistari í svigi, Þórdís Helga Grétarsdóttir úr Víkingi, var með annan tímann og Eyrún Erla Gestsdóttir, einnig úr Víkingi, með þriðja besta tímann. 

Í seinni ferð náði Elín Elmarsdóttir Van Pelt Víkingi besta tímanum, sem skilaði henni bronsinu eftir að hafa verið í fjórða sæti eftir fyrri ferð. Þórdís Helga tryggði sér silfrið en Sonja Lí Kristinsdóttir stóð uppi sem íslandsmeistari í stórsvigi.

Í karlaflokki var Gauti Guðmundsson úr KR, nýkrýndur íslandsmeistari í svigi, með besta tímann eftir fyrri ferð. Matthías Kristinsson úr Skíðafélagi Ólafsfjarðar var annar og Bjarni Þór Hauksson úr Víkingi þriðji. Jón Erik Sigurðsson bætti stöðu sína verulega í seinni ferð, náði þriðja besta tímanum og tryggði sér bronsverðlaun eftir að hafa verið í fimmta sæti eftir fyrri ferð. Matthías fékk silfrið og Gauti Guðmundsson varð íslandsmeistari í stórsvigi.

Gauti varð þar með þrefaldur íslandsmeistari árið 2026, eftir sigra í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. Í alpatvíkeppni karla varð Matthías Kristinsson í öðru sæti og Jón Erik Sigurðsson í því þriðja.

Í alpatvíkeppni kvenna varð Þórdís Helga Grétarsdóttir íslandsmeistari, Sonja Lí Kristinsdóttir varð önnur og Eyrún Erla Gestsdóttir þriðja. Þórdís varð þar með tvöfaldur íslandsmeistari árið 2026, í svigi og alpatvíkeppni.

Einnig var keppt í flokki 16–17 ára. Í kvennaflokki sigraði Hrefna Lára Zoëga úr ÚÍA, Rakel Lilja Sigurðardóttir úr ÚÍA varð önnur og Ásta Kristin Þórðardóttir úr Ármanni þriðja. Í karlaflokki stóð Arnór Alex Arnórsson úr KR uppi sem sigurvegari, Hrafnkell Gauti Brjánsson úr Ármanni varð annar og Óskar Valdimar Sveinsson úr Dalvík þriðji.

Í alpatvíkeppni 16–17 ára kvenna sigraði Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir úr ÚÍA, Viktoría Björk Harðardóttir úr Breiðabliki varð önnur og Ásta Kristin Þórðardóttir þriðja. Í karlaflokki sigraði Óskar Valdimar Sveinsson úr Dalvík, Hrafnkell Gauti Brjánsson úr Ármanni varð annar og Kári Freyr Orrason úr Ármanni þriðji.

Skíðasamband Íslands óskar öllum íslandsmeisturum og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Á morgun fer fram keppni í samhliðasvigi og eru allir hvattir til að mæta og fylgjast með spennandi keppni.

Sjá úrslit hér