Einar Árni með góðan árangur á Norges Cup í Þrándheimi

Íslenskir keppendur stóðu sig vel á Norges Cup í Þrándheimi um helgina

Einar Árni Gíslason (SKA) náði góðum árangri á föstudeginum í 10 km hefðbundinni göngu, þar sem hann náði sínum næstbestu FIS-punktum á ferlinum. Sá árangur mun skila honum hækkun á heimslista FIS þegar næsta uppfærsla listans verður birt.

Auk Einars Árna tóku einnig þátt í keppninni Grétar Smári Samúelsson (SFÍ) og Hjalti Böðvarsson (Ulli). Báðir áttu þeir sterkar og stöðugar göngur og náðu sínum bestu FIS-punktum til þessa, sem staðfestir góðar framfarir þeirra í greininni.

Keppni á Norges Cup er mikilvægur liður í alþjóðlegum undirbúningi íslenskra keppenda og veitir dýrmæta reynslu gegn sterkum erlendum mótherjum.

Sjá úrslit hér

Skíðasamband Íslands óskar strákunum til hamingju með árangurinn