Í dag hófst skíðamót Íslands í skíðagöngu á Ólafsfirði. Frábærar aðstæður voru á Ólafsfirði í dag, frost, sól, logn og nægur snjór. Keppt var með hefðbundinni aðferð og ræst út með hópstarti. Íslandsmeistari í karlaflokki varð Dagur Benediktsson frá Ísafirði, annar varð Einar Árni Gíslason frá Akureyri og þriðji Snorri Einarsson frá Ísafirði. Eyþór Árnason átti frábæran dag og varð fjórði í göngunni og þar með Íslandsmeistari í sínum aldursflokki 17-18 ára.
Í kvennaflokki varð Kristrún Guðnadóttir Ulli íslandsmeistari, María Kristín Ólafsfdóttir Ulli varð önnur og þriðja varð Vala Kristín Georgsdóttir einnig frá Ulli.
Einnig var keppt í flokkum 13-14 ára drengja og stúlkna, Íslandsmeistarar urðu Friðgeir Logi Halldórsson SFS og Viktoría Rós Guseva SKA og í flokki 15-16 ára urðu Jökull Ingimundur Hlynsson SFS og Birna Dröfn Vignisdóttir SFS hlutskörpust.
Á morgun sunnudag verður keppt með frjálsri aðferð og hefst keppni kl 11:00.
Linkur á myndir frá deginum: Myndir 28.3.2026