Dagur Benediktsson keppti í sinni fyrstu göngu á Ólympíuleikunum í dag

Photos: Maddie Meyer, Alex Slitz / Getty Images
Photos: Maddie Meyer, Alex Slitz / Getty Images

Dagur Benediktsson staðráðinn í að sýna sitt rétta andlit á næsta keppnisdegi

 

Skíðagöngumaðurinn Dagur Benediktsson hóf keppni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu með 20 km skiptigöngu í dag, þar sem hann lenti í 66. sæti eftir erfiða göngu. Dagur segist þó ákveðinn í að láta þetta ekki slá sig út af laginu og ætlar sér að sýna „sitt rétta andlit“ þegar hann mætir aftur til leiks eftir tvo daga.

Dagur var með startnúmer 50 og stefndi að því að halda því út fyrstu tvo hringina. Fljótlega fór þó að bera á þreytu þar sem bæði erfitt færi og óvenjulegur hiti höfðu mikil áhrif á hann. „Þungt og erfitt færi og heitt,“ lýsti hann eftir á, og bætti við að hitinn hefði verið sérstaklega krefjandi.

Dagur fann sig betur í frjálsu aðferðinni, en Dagur var hringaður seint í keppnina eða eftir rúmlega 15km og þurfti því að hætta keppni, sem hann sagðist að sjálfsögðu svekktur yfir. Hann horfir þó þegar til næstu greina:
„Ég hlakka til að keppa aftur eftir tvo daga og sýna mitt rétta andlit.

Dagur á eftir að keppa í þremur greinum á Ólympíuleikunum og leggur áherslu á að nýta reynsluna úr fyrstu keppninni til að bæta frammistöðu sína í þeim næstu.

Þriðjudaginn 10. febrúar keppa þau Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson í klassískri sprettgöngu. Skíðasambandið óskar Kristrúnu og Degi góðs gengis á mótinu. Áfram Ísland!