Bjarni Þór aftur með sigur á Ítalíu – Matthías í 2. sæti

Bjarni Þór sigrar stórt á FIS-móti í Cavalese – Matthías aftur í öðru sæti

Bjarni Þór Hauksson náði enn einum glæsilegum sigri þegar hann vann FIS-mót í stórsvigi í Cavalese – Alpe Cermis á Ítalíu. Bjarni Þór sigraði með yfir sekúndu forskot á liðsfélaga sinn, Matthías Kristinsson, sem hafnaði í 2. sæti.

Sigurinn skilaði Bjarna Þór öðrum bestu FIS-punktum sem hann hefur náð á ferlinum í stórsvigi og bætir hann stöðu sína á FIS-heimslistanum með þessum árangri. Matthías bætir einnig stöðu sína á heimslistanum með sterkri frammistöðu sinni í mótinu.

Það var mjög gaman að ná sigrinum í dag líka. Ég er ánægður með að ég náði að halda haus. Aftur mjög gaman að deila pallinn með liðsfélaga,“ sagði Bjarni Þór erftir mótið í dag. 

Aðrir íslenskir keppendur tóku einnig þátt í mótinu. Arnór Alex Arnórsson endaði í 29. sæti, á meðan Andri Dagur Unnarsson náði ekki að ljúka fyrri ferðinni.

Sjá úrslit hér

Skíðasambandið óskar Bjarna Þór og Matthíasi innilega til hamingju með árangurinn.