Bjarni í 3. sæti í svigi í Jenner í Þýskalandi og Gauti með flottan árangur í USA

Íslenska karlalandsliðið í alpagreinum tók þátt í alþjóðlegu FIS móti í svigi sem fram fór í Jenner í Þýskalandi í dag. 

Bjarni Þór, Matthías, Tobias og Pétur Reidar tóku allir þátt í mótinu í dag sem var afar sterkt skipað og tóku keppendur úr mörgum heimshlutum þátt, sem skapaði harða og krefjandi samkeppni.

Bjarni Þór náði frábærum árangri og hafnaði í 3. sæti, jafnt tveimur öðrum keppendum. Matthías átti einnig gott mót og endaði í 6. sæti eftir tvær flottar ferðir. Tobias og Pétur Reidar náðu því miður ekki að ljúka fyrri ferð að þessu sinni.

Sjá úrslit hér

 

Gauti með verðlaunasæti og fyrstu Nor-Am Cup stigin

Gauti Guðmundsson var við keppn í Bandaríkjunum á dögunum þar sem hann tók þátt í Norður Ameríkubikarnum og háskólamótum.

Hann tryggði sér sín fyrstu stig í Norður-Ameríkubikarnum með því að enda í 16. og 30. sæti í svigi í Whiteface Mountain og á háskólamóti sem fram fór í Jiminy Peak Mountain Resort náði Gauti 3. sæti í svigi. 

Sjá úrslit hér

SKÍ óskar strákunum til hamingju með góðan árangur.