Bikarmeistarar í fullorðinsflokki karla og kvenna, sem og í flokki 16–17 ára stúlkna og pilta, voru krýndir við hátíðlega athöfn á lokahófi sem Skíðafélag Akureyrar stóð fyrir á Múlabergi í gær.
Bikarmeistarar Skíðasambands Íslands í fullorðinsflokki árið 2026 eru kærustuparið Andri Kári Unnarsson úr Ármanni og Eyrún Erla Gestsdóttir úr Víkingi.
Við sama tilefni var bikarinn fyrir stigahæsta félagið í liðakeppni 16 ára og eldri afhentur. Það var ÚÍA sem hlaut bikarinn í ár með 4.170 stig, Ármann varð í öðru sæti með 3.413 stig og Dalvík í því þriðja með 2.425 stig.
Sérstök viðurkenning var veitt Ólympíuförum Íslands 2026, en þau hlutu silfurmerki Skíðasambands Íslands. Heiðurinn hlutu Elín Elmarsdóttir Van Pelt úr Víkingi, Jón Erik Sigurðsson úr Fram og Sonja Lí Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar.
Arnar Goði Valsson úr ÚÍA hlaut jafnframt sérstök verðlaun frá 66°Norður fyrir þrautsegju, seiglu og það að vera öðrum innblástur í dugnaði. 66°Norður gaf einnig bikarmeisturum verðlaun sín í ár.
Samhliðasvig, sem vera átti lokagrein Landsmótsins í alpagreinum, var aflýst í dag vegna mikillar úrkomu og nýfalls snævar. Ekki þótti unnt að tryggja nægilega öruggar aðstæður fyrir keppendur og því var tekin ákvörðun um að fella greinina niður. Með því er Skíðamót Íslands í alpagreinum 2026 formlega lokið.
Skíðasamband Íslands vill færa Skíðafélagi Akureyrar og öllum sjálfboðaliðum bestu þakkir fyrir framúrskarandi störf í vikunni og um helgina. Framlag þeirra er ómetanlegt og lykilatriði í vel heppnuðu móti.
Að lokum óskar Skíðasambandið öllum bikarmeisturum og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.
— Sjá úrslit hér





