Afrekshópur snjóbretta - Nýtt tækifæri fyrir metnaðarfulla iðkendur

Vegna mikils áhuga meðal iðkenda í hæfileikamótun snjóbretta kynnir Skíðasamband Íslands Afrekshóp snjóbretta. Markmið hópsins er að vera milliskref á milli hæfileikamótunar og landsliðs fyrir þá iðkendur sem eru metnaðarfullir og tilbúnir til að leggja á sig aukavinnu til að ná langt í íþróttinni.

Boðið verður upp á fjölbreytt verkefni þar sem iðkendur sækja um þátttöku og valið er í hvert verkefni fyrir sig.

Hópurinn er ætlaður iðkendum fæddum 2011 og fyrr (eldri) fyrir þetta tímabil, þó eru ákveðin verkefni eingöngu ætluð U18 iðkendum.

Skilyrði fyrir umsókn:
Iðkendur þurfa að vera skráðir í aðildarfélag Skíðasambands Íslands til að geta sótt um þátttöku í afrekshópnum.

Aðalþjálfarar:

  • Jökull Elí Borg
  • Oddur Vilberg Sigurðsson

Inntökuskilyrði

Strákar

  • Geta framkvæmt bæði FS 360 og BS 360 með grab á miðlungsstórum palli (a.m.k. 6 metrar)
  • Geta framkvæmt bæði 50/50 og boardslide á stærra raili (ekki pípu eða boxi)
  • Vera tilbúnir til þess að ferðast erlendis með hópnum í tengslum við mót og æfingabúðir

Stelpur

  • Geta framkvæmt annað hvort FS 360 eða BS 360 með grab á miðlungsstórum palli (a.m.k. 6 metrar)
  • Geta framkvæmt annað hvort 50/50 eða boardslide á stærra raili (ekki pípu eða boxi)
  • Vera tilbúnar til þess að ferðast erlendis með hópnum í tengslum við mót og æfingabúðir

Æfingaáætlun

Þjálfun innan afrekshópsins verður einstaklingsmiðuð. Markmið hvers iðkanda er að ná að uppfylla inntökuskilyrði inn í B landsliðið.

Iðkendur fá þol- og styrktaráætlun sem þau þurfa að fylgja bæði á undirbúningstímabilinu og yfir veturinn.

Á komandi vetri verða fimm mismunandi verkefni í boði. Þau verða auglýst sérstaklega og þurfa iðkendur að sækja um þátttöku. Valið er í hvert verkefni fyrir sig út frá:

  • tæknilegri getu
  • árangri og FIS stigum
  • metnaði
  • hugarfari

Verkefni vetrarins

Kläppen – Æfingaferð

2.–7. september
Æfingaferð til Svíþjóðar þar sem æft er á loftpúða.
Áætlaður kostnaður: 250.000–300.000 kr. á hvern iðkanda

Stubai – Æfingaferð

5.–14. nóvember
Æfingaferð til Austurríkis. Skráning fer fram í gegnum hæfileikamótun en sérstakt æfingaskipulag verður fyrir þá sem stefna á þátttöku í afrekshóp yfir veturinn.

Valley Ralley Mayrhofen – Æfinga- og keppnisferð

  1. febrúar – 1. mars 2027
    Stefnt er á um það bil viku af æfingum og síðan þátttöku í keppni.
    Val á þátttakendum byggist á frammistöðu í Kläppen og Stubai.

Valley Ralley Hintertux – Æfinga- og keppnisferð

19.–26. apríl 2027
Æfingar og keppni í Austurríki.
Val á þátttakendum byggist á frammistöðu í Kläppen og Stubai.

World Rookie Tour – Æfinga- og keppnisferð

Dagsetningar hafa ekki enn verið staðfestar.
Stefnt er á að æfa í að minnsta kosti viku og taka þátt í keppni.

Val á þátttakendum byggist á frammistöðu í Kläppen og Stubai.

Athugið:
World Rookie Tour er eingöngu fyrir U18 iðkendur.

Nánari upplýsingar verða settar inn á Facebook hóp Afrekshópsins sem þið finnið hér