27. nóv. 2026
Anna Kamilla Hlynsdóttir, sem er að koma til baka eftir meiðsli, hafnaði í 17. sæti af 30 keppendum í undankeppni kvenna í Big Air á opnunarmóti heimsbikarsins á snjóbretti í Innsbruck í Austurríki fimmtudaginn 26. nóvember, þegar konur kepptu í fyrsta sinn á hinum sögufræga Bergisel-leikvangi.
27. nóv. 2026
Matthías Kristinsson svaraði fyrir sig á öðrum keppnisdegi í Suomu í Finnlandi og skilaði sér í mark í 48. sæti af 102 keppendum í svigi í Evrópubikarnum.
24. nóv. 2026
Skíðaveturinn er kominn á fullt: Sara Mjöll Jóhannsdóttir náði sínum bestu FIS-punktum á ferlinum í svigi í finnska Lapplandi, íslenskir skíðamenn kepptu í þremur löndum og 14 þjálfarar settust á skólabekk í Tindastóli.
23. nóv. 2026
Íslenskir skíðagöngumenn náðu góðum árangri á FIS-mótum í Svíþjóð og Noregi dagana 20.–22. nóvember. Einar Árni Gíslason náði sínum bestu FIS-punktum á ferlinum í göngu með frjálsri aðferð í Bruksvallarna, á meðan Fróði Hymer átti sína bestu göngu með frjálsri aðferð til þessa í Beitostølen og sína bestu göngu með hefðbundinni aðferð í mjög langan tíma. Ástmar Helgi Kristinsson bætti jafnframt sína bestu FIS-punkta í sprettgöngu.
16. nóv. 2026
Alpagreinalandsliðið hóf keppnistímabilið á tveimur svigmótum í Kåbdalis í Svíþjóð um helgina, þar sem Matthías Kristinsson og Gauti Guðmundsson urðu í 18. og 20. sæti á sunnudag.
16. nóv. 2026
Íslenska skíðagöngulandsliðið hóf keppnistímabilið á þriggja daga FIS-móti í Muonio í Finnlandi um helgina, þar sem Fróði Hymer náði bestum árangri þegar hann varð í 36. sæti af 147 í 10 km göngu með frjálsri aðferð á sunnudag og náði jafnframt bestu FIS-punktum ferilsins.
12. nóv. 2026
Skíðafélag Ólafsfjarðar fagnaði 25 ára afmæli sínu 18. október og við það tilefni veitti Skíðasamband Íslands þremur sjálfboðaliðum félagsins gull- og silfurmerki SKÍ.
12. nóv. 2026
Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskar eftir umsóknum frá áhugasömum einstaklingum til að sinna verkefnum á HM og HM unglinga í alpagreinum og HM unglinga í skíðagöngu árið 2027.
11. nóv. 2026
Karítas Sigurðardóttir náði 2. og 3. sæti á FIS-svigmótum í Osló dagana 10.–11. nóvember, þar sem fimm íslensk ungmenni kepptu.
13. okt. 2026
Það var góður andi í Drift EA á Akureyri um liðna helgi þegar 77. Skíðaþing fór fram. Hápunkturinn var vinnustofa um stefnumótun. Þar tóku þingfulltrúar víðs vegar af landinu höndum saman og lögðu grunn að framtíðarsýn skíðahreyfingarinnar.