13. apr. 2026
Bikarmeistarar SKÍ í alpagreinum í flokkum 12–13 ára og 14–15 ára voru krýndir við hátíðlega athöfn á lokahófi Unglingameistaramóti Íslands (UMÍ), sem fram fór á Logni á Hótel Ísafirði síðastliðinn laugardag.
Bikarmeistarar ársins voru þau Elvar Magni Þorvaldsson, Mirra Kristín Pálmarsdóttir, Barri Björgvinsson og Jóhanna Skaftadóttir, sem öll áttu afar sterkt tímabil.
13. apr. 2026
Mundína Ósk Þorgeirsdóttir úr Skíðafélagi Siglufjarðar og Barri Björgvinsson frá Skíðafélagi Dalvíkur voru bæði þrefaldir íslandsmeistarar í 14 – 15 ára flokki.
Inga Fríða Orradóttir úr Ármanni og Elvar Magni Þorvaldsson frá Skíðafélagi Akureyrar voru bæði þrefaldir Íslandsmeistarar í 12 – 13 ára flokki.
12. apr. 2026
Skíðamót Íslands í skíðaskotfimi fór fram laugardaginn 11. apríl í Selárdal við Steingrímsfjörð. Vegna slæmrar veðurspár fyrir sunnudaginn var keppni mótsins flýtt og keppt í tveimur greinum sama dag.
11. apr. 2026
Landsliðsmaðurinn Jón Erik Sigurðsson náði góðum árangri í dag þegar hann hafnaði í 3. sæti í svigi á National Junior Championship mótinu í Val d’Isère. Frakkar skipuðu tvö efstu sætin í keppninni, en Jón Erik tryggði sér bronsverðlaunin með sterkri frammistöðu.
10. apr. 2026
Landsliðsmaðurinn og Ólympíufarinn Jón Erik Sigurðsson náði frábærum árangri í dag þegar hann hafnaði í 2. sæti á National Junior Championship mótinu í Val d’Isère í Frakklandi.
08. apr. 2026
Landsliðskonan í snjóbrettum, Anna Kamilla Hlynsdóttir, tók í dag þátt í Evrópubikar í Big Air sem fram fór í Kitzsteinhorn í Austurríki. Anna Kamilla stóð sig frábærlega, tryggði sér sæti í úrslitum og endaði í 6. sæti, sem er glæsilegur árangur.
30. mar. 2026
Bikarmeistarar Skíðasambands Íslands í skíðagöngu fyrir keppnistímabilið 2025–2026 voru krýndir á síðasta keppnisdegi á Skíðamóti Íslands sem fram fór á Ólafsfirði um helgina.
30. mar. 2026
Sprettganga Skíðamóts Íslands fór fram í frábærum aðstæðum á Ólafsfirði í dag en þetta var jafnframt loka dagur mótsins.
29. mar. 2026
Kristrún og Dagur sigruðu göngur dagsins annan daginn í röð á Íslandsmeistaramótinu í göngu með fjrálsri aðferð í dag.
29. mar. 2026
Bikarmeistarar í fullorðinsflokki karla og kvenna, sem og í flokki 16–17 ára stúlkna og pilta, voru krýndir við hátíðlega athöfn á lokahófi sem Skíðafélag Akureyrar stóð fyrir á Múlabergi í gær.