Val á HM í norrænum greinum

Skíðasamband Íslands hefur valið keppendur á heimsmeistaramótið í norrænum greinum. Að þessu sinni fer heimsmeistaramótið fram í Lahti í Finnlandi og stendur yfir frá 22.feb til 5.mars. Er þetta í sjönda skipti sem Lahti mun halda HM í norrænum greinum. Allir keppendur eru valdir til þátttöku í skíðagöngu en einnig er keppt í skíðastökki og norrænni tvíkeppni. Einungis hefur einn keppandi náð lágmörkum fyrir lengri vegalengdir en það er Snorri Einarsson. Aðrir keppendur sem valdir eru þurfa að fara í undankeppnina þann 22.feb ef enginn nær lágmörkum áður en HM hefst. Hópurinn mun dvelja í HM þorpinu frá 20.feb til 2.mars. Hér að neðan má sjá keppnisplanið ásamt vali á keppendum og fylgdarmönnum.

Keppnisplan:
22.feb - Undankeppni fyrir lengri vegalengdir
23.feb - Sprettganga
25.feb - Skiptiganga
26.feb - Liðasprettur
28.feb - 10km ganga með hefðbundinni aðferð kvenna
1.mars - 15km ganga með hefðbundinni aðferð karla

Keppendur:
Elsa Guðrún Jónsdóttir
Albert Jónsson
Brynjar Leó Kristinsson
Snorri Einarsson
Sævar Birgisson

Fararstjórn:
Jón Viðar Þorvaldsson - Fararstjóri
Jostein H. Vinjerui - Landsliðsþjálfari
Baldur Helgi Ingvarsson - Aðstoðarmaður/læknir
Vegard Karlstrøm - Smurningsmaður
Karl Gunnar Skjøenfjell - Smurningsmaður

Hér verður hægt að finna öll úrslit frá mótinu ásamt lifandi tímatöku. Einnig er hægt að finna mikið af upplýsingum á heimasíðu mótsins.