Tour de Ski - Snorri í 46.sæti, besti árangur í vetur

Snorri Einarsson í sprettgöngunni í Toblach í gær. Mynd: NordicFocus
Snorri Einarsson í sprettgöngunni í Toblach í gær. Mynd: NordicFocus

Tour de Ski hélt áfram í dag þegar keppt var í 15 km göngu með frjálsri aðferð í Toblach, Ítalíu. Var þetta önnur keppnin af alls sjö á mótaröðinni. Snorri Einarsson átti góða göngu og endaði í 46.sæti eftir að hafa verið með rásnúmer 81 og þar af leiðandi nr. 81 útfrá heimslista FIS í mótinu. Fyrir mótið fær Snorri 45.49 FIS stig sem er nokkur bæting á heimslistanum en þar er hann með 55.05 FIS stig. Er þetta besti árangur Snorra á heimsbikarmótaröðinni í vetur en áður hafði hann náð best 58.sæti.

Í heildarkeppninni í Tour de Ski er Snorri í 49.sæti eftir fyrstu tvær keppnirnar. Á morgun er hvíldardagur en keppni hefst aftur 1.janúar með sprettgöngu í Val Müstair í Sviss.

30.des 2018 - 15 km, frjáls aðferð
46.sæti - Snorri Einarsson 45.49 FIS stig

Heildarúrslit má sjá hér.

Tour de Ski 2018/19 - Dagskrá framundan

Val Müstair, Sviss
1.jan - Sprettur, frjáls aðferð (úrslitin hefjast kl.11:00 á íslenskum tíma)

Oberstdorf, Þýskaland
2.jan - 10/15 km, hefðbundin aðferð, hópstart (hefst kl.13:00 á íslenskum tíma)
3.jan - 10/15 km, frjáls aðferð, eltiganga (hefst kl.11:45 á íslenskum tíma)

Val di Fiemme, Ítalía
5.jan - 10/15 km, hefðbundin aðferð, hópstart (hefst kl.14:10 á íslenskum tíma)
6.jan - Final Climb 9 km, frjáls aðferð, eltiganga (hefst kl.13:45 á íslenskum tíma)

Hægt verður að horfa á beina útsendingu frá mótinu á sjónvarpsstöðvum eins og NRK, SVT og Eurosport. Á heimasíðu FIS verður hægt að finna lifandi tímatöku og svo endanleg úrslit frá öllum hér.