Þjálfari 2 námskeið í skíðagöngu - seinni hluti

Skíðasamband Íslands stendur fyrir þjálfaranámskeiði á 2.stigi fyrir þjálfara í skíðagöngu. Fyrri hlutinn fór fram í október og seinni hlutinn byggir því á þeim hluta. Fyrri hlutinn fór meira í þolþjálfun þegar ekki er æft á snjó á meðan seinni hlutinn er meira um æfingar á snjó.

Þjálfari 2 (seinni hluti) 10.-12.jan 2020. Námskeiðið byggir á Þjálfari 1 og tekur mið af þjálfun barna og unglinga ca. frá 13-18/19 ára.

Dagskrá:
Föstudagur 10.jan kl. 17-22
Laugardagur 11.jan kl. 09-18.30
Sunnudagur 12.jan kl. 09-14.30
Námskeiðið fer fram á Akureyri.

Aðal leiðbeinandi seinni hluta verður Ingunn Fossmellem frá Noregi og henni til aðstoðar verður Ólafur H. Björnsson.

Skráning er á netfangið ski@ski.is og er skráningarfrestur til og með 6.janúar. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur. Þátttökugjald er 40.000 kr. fyrir námskeiðið í heild (20.000 kr. fyrir hvorn hluta) og þarf að greiðast eigi síðar en 7.janúar. Einungis þeir þátttakendur sem ljúka báðum hlutum klára námskeiðið í heild sinni og fá viðeigandi skírteini. Hins vegar er líka hægt að sækja einungis annan hlutann og greiða fyrir það. Afskrái þátttakandi sig eftir 7.janúar fæst þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Lágmarksþátttaka á námskeiðið eru sjö þátttakendur. Ef sá fjöldi næst ekki verður seinni hlutanum frestað.