Þjálfaranámskeið í alpagreinum

Endurmenntunarnámskeið 28.-30.apríl 2017

Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir skíðaþjálfara í alpagreinum. Námskeiðið er endurmenntunarnámskeið og fer fram í Reykjavík. Stefnt er að bæði bóklegum og verklegum hluta á snjó.

Dagskrá
Föstudagur kl. 19-22 í Bláfjöllum/Reykjavík
Laugardagur kl. 09-17 í Bláfjöllum/Reykjavík
Sunnudagur kl. 09-17 í Bláfjöllum/Reykjavík

Leiðbeinandi verður Stephen Helfenbein (USA) og mun námskeiðið fara fram á ensku.

Námskeiðið er opið öllum, hvort sem þeir hafa lokið öðrum þjálfaranámskeiðum eða ekki.

Þátttökugjald er 10.000 kr. og greiðist við skráningu. Skráning er á netfangið ski@ski.is og er skráningarfrestur til og með 26.apríl. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur.

Nánari upplýsingar veitir Jón Viðar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SKÍ, á netfanginu ski@ski.is.