Styttist í að Íslandsgangan hefjist

Íslandsgangan er röð skíðagöngumóta sem trimmnefnd Skíðasambands Íslands hefur efnt til árlega síðan 1985. Henni er ætlað að höfða til allra sem áhuga hafa á skíðaíþróttum, bæði þeim sem leitast eftir ánægjulegri og hollri útiveru og eins metnaðarfyllra keppnisfólki.

Nú styttist í fyrsta mót vetrarins en það fer fram á Ólafsfirði samhliða bikarmóti SKÍ helgina 27.-28.febrúar. Við hvetjum sem flesta til þess að draga fram gönguskíðin og njóta þess að vera í okkar fallegu náttúru. 

Í mótaröðinni geta verið allt að sex skíðagöngumót sem haldin eru víðs vegar um landið. Lágmarksvegalengd í stigakeppni Íslandsgöngunnar er 20 km en í hverri göngu eru einnig í boði styttri vegalengdir þannig að allir eiga að geta fundið brautir við sitt hæfi, bæði þrautþjálfað keppnisfólk, trimmarar og jafnvel hreinir byrjendur. Markmiðið er að ná til sem allra flestra þar sem hver og einn getur verið með á eigin forsendum. Þeir, sem ganga lengstu vegalengd sem er í boði í hverju móti, taka þannig þátt í stigakeppni mótaraðarinnar og í lok síðasta móts vetrarins eru krýndir stigameistarar. Í stigakeppninni er keppt í þremur aldursflokkum: 16-34 ára, 35-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri, bæði í kvenna- og karlaflokkum. Eftir hvert mót fá allir þátttakendur verðlaunapeninga fyrir framgöngu sína, auk þess sem þrír fyrstu menn í hverjum flokki eru heiðraðir sérstaklega.

Reglugerð um Íslandsgöngur 

Fossavatnsgangan sem er hluti af Íslandsgöngunni er einnig hluti af Landvættum en það er fjölþrautafélag þar sem taka þarf þátt í fjórum mótum, skíðagöngu, sundi, hlaupi og hjólareiðum. Mótin eru alltaf þau sömu og dreyfast þau á milli landshluta. 

Frekari upplýsingar er hægt að finna inná heimasíðu Landvættarins.