Sturla Snær krækti í fyrri ferð

Fyrri ferð í svigi karla á heimsmeistaramótinu er lokið. Sturla Snær Snorrason hóf leik númer 76 af alls 100 keppendum en ekki að ljúka keppni. Rétt fyrir brattasta kafla brautarinnar krækti Sturla Snær eitt hlið og var því úr leik. Þetta var síðasta keppnin á heimsmeistaramótinu og því þátttöku Íslendinga lokið. Í kvöld keyrir hópurinn til Munchen og farið verður heim á morgun.

Heildarúrslit er hægt að sjá hér.