Sprettgöngu lokið á Skíðamóti Íslands

Fyrsta mótsgrein á Skíðamóti Íslands árið 2016 fór fram í kvöld en keppt var í sprettgöngu. Gangan fór fram við Ártúnsbrekku í Elliðárdal og tókst vel í alla staði. Mikið var um áhorfendur og var keppninni mjög spennandi og skemmtileg. Keppnisbrautin var um 100 metra löng og voru snjólög virkilega góð enda var búið að undirbúa grunninn vel. Nokkuð svalt var á meðan keppni stóð og blés vindur aðeins á keppendur.

Í kvennaflokki var virkilega spennandi keppni þar sem Kristún Guðnadóttir vann í úrslitum gegn Elsu Guðrúnu Jónsdóttur með litum mun. Í karlaflokki hafði Sævar Birgisson betur gegn Degi Benediktssyni. 

Konur
1. Kristrún Guðnadóttir   Ulli
2. Elsa Guðrún Jónsdóttir  Ólafsfirði
3. Sólveig María Aspelund  Ísafirði

Karlar
1. Sævar Birgisson Ólafsfirði
2. Dagur Benediktsson Ísafirði 
3. Sigurður Hannesson Ísafirði

Á morgun fer fram keppni í skíðagöngu með frjálsri aðferð og í alpgreinum verður keppt í stórsvigi. Báðar keppnir hefjast kl. 15:00, þar sem veður verður ekki ákjósanlegt í fyrramálið.