SKÍ auglýsir eftir landsliðsþjálfara í alpagreinum

Skíðasamband Íslands (SKÍ) auglýsir eftir landsliðsþjálfara í alpagreinum.

Landsliðsþjálfara er ætlað að hafa umsjón með starfsemi og þjálfun landsliða SKÍ í alpagreinum. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að vera töluvert á ferðum, bæði utanlands og innanlands.  Ráðning er til eins árs og er um 45% hlutastarf að ræða.  Starfshlutafallið getur þó aukist eftir því sem starfsemi SKÍ tekur breytingum  Staðan er laus frá og með 1. maí 2019.

Starfssvið landsliðsþjálfara:

  • Yfirumsjón með þjálfun landsliða SKÍ í alpagreinum.
  • Umsjón og skipulagning æfinga og keppnisferða í samstarfi við skrifstofu SKÍ.
  • Samskipti við landsliðsfólk.
  • Samstarf við fræðslunefnd SKÍ um menntun þjálfara.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Reynsla af þjálfun á afreksíþróttastigi.
  • Þjálfaramenntun í alpagreinum sem nýtist í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð enskukunnátta er skilyrði. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á alpagreinum sem keppnisíþrótt sem getur unnið sjálfstætt og býr yfir yfirvegun og hæfni í mannlegum samskiptum.

Skíðasamband Íslands er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og er æðsti aðili skíðamála á Íslandi.

Umsóknum skal skilað með tölvupósti á netfangið ski@ski.is og er umsóknafrestur til og með föstudeginum 26. apríl 2019.

Frekari upplýsingar veitir Jón Viðar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SKÍ í síma 660-4752 og/eða á netfanginu ski@ski.is.

Auglýsinguna má nálgast á ensku hér: English version