Síðasta bikarmóti vetrarins lokið

Um helgina fór fram síðasta bikarmót vetrarins í alpagreinum. Keppt var í svigi og stórsvigi í flokkum 12-15 ára. Mótahaldið gekk virkilega vel og voru aðstæður góðar á Dalvík um helgina. Veður var með best móti og bakkinn hélt vel. 

Öll úrslit frá helginni og mótum vetrarins má nálgast hér.