Setningarhátíð EYOF 2017 fór fram í kvöld

Setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fór fram í kvöld. Ólympíuhátíðin er nú að hefjast í þrettánda sinn og fer að þessu sinni fram í Erzurum í Tyrklandi. Þátttökuþjóðir eru 34, þátttakendur eru um 1200 og keppni stendur yfir frá mánudegi til föstudags. 

Setningarathöfnin fór fram á knattspyrnuleikvangi  - Kazim Karabekir. Eins og á öðrum Ólympískum viðburðum hófst athöfnin á inngöngu íþróttamanna og við setninguna var Ólympíueldurinn tendraður sem loga mun meðan á leikunum stendur.

Fánaberi íslenska hópsins við setningarathöfnina var Katla Björg Dagbjartsdóttir.

Keppni hefst svo í fyrramálið, þeir sem keppa á morgun mánudag eru: Harpa María, Katla Björg, María og Sigríður Dröfn í stórsvigi. Í skíðagöngu 7.5 km keppa þeir Arnar, Pétur Tryggvi og Sigurður Arnar, Anna María keppir í 5km göngu. Í stuttu prógrammi á listskautum keppir Herdís Birna. Hægt er að fylgjast með meðal annars dagskrá og úrslitum á heimasíðu leikanna - sjá hér.