PyeongChang 2018 - Elsa Guðrún í 78.sæti í 10 km göngu

Elsa Guðrún Jónsdóttir að keppni lokinni í dag
Elsa Guðrún Jónsdóttir að keppni lokinni í dag

Elsa Guðrún Jónsdóttir varð í dag fyrsta konan til að keppa í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikum þegar hún tók þátt í 10 km göngu með frjálsri aðferð. Elsa ræsti út nr. 77 af alls 90 keppendum. Gengnir voru tveir 5 km hringir og voru aðstæður eins og þær gerast besta. Um -1° frost var á svæðinu, nánast logn og sólin skein. Elsa átti góða göngu og endaði að lokum í 78. sæti.

Hér að neðan má sjá helstu úrslit og heildarúrslit má nálgast hér.

Elsa Guðrún hefur nú lokið keppni en þetta var hennar eina ganga á leikunum. Næsti íslenski keppandinn í skíðagöngu verður Snorri Einarsson sem keppir í 15 km göngu með frjálsri aðferð á morgun og hefst hún kl. 06:00 á íslenskum tíma. Allar upplýsingar um þátttöku íslensku keppendana má sjá hér.

RankBibFIS CodeNameYearNationTimeBehindFIS Points
 1  50  3425421 HAGA Ragnhild  1991  NOR   25:00.5     0.00
 2  52  3505217 KALLA Charlotte  1987  SWE   25:20.8  +20.3  10.82
 3  32  1303777 BJOERGEN Marit  1980  NOR   25:32.4  +31.9  17.01
 3  48  3185256 PARMAKOSKI Krista  1990  FIN   25:32.4  +31.9  17.01
 5  56  3535410 DIGGINS Jessica  1991  USA   25:35.7  +35.2  18.77
 6  46  3515184 VON SIEBENTHAL Nathalie  1993  SUI   25:50.3  +49.8  26.55
 7  58  3425410 OESTBERG Ingvild Flugstad  1990  NOR   26:06.0  +1:05.5  34.92
 8  42  3485890 SEDOVA Anastasia  1995  RUS   26:07.8  +1:07.3  35.88
 9  54  3055067 STADLOBER Teresa  1993  AUT   26:16.1  +1:15.6  40.31
 10  29  3485849 NECHAEVSKAYA Anna  1991  RUS   26:24.8  +1:24.3  44.95
 11  60  3425499 WENG Heidi  1991  NOR   26:25.1  +1:24.6  45.10
 12  37  3565034 CEBASEK Alenka  1989  SLO   26:30.1  +1:29.6  47.77
 13  30  3505990 ANDERSSON Ebba  1997  SWE   26:32.9  +1:32.4  49.26
 14  28  3195010 THOMAS HUGUE Coraline  1984  FRA   26:37.9  +1:37.4  51.93
 15  44  3535320 BJORNSEN Sadie  1989  USA   26:42.6  +1:42.1  54.44
 16  23  1365857 RANDALL Kikkan  1982  USA   26:50.4  +1:49.9  58.59
 17  19  3485862 ZHAMBALOVA Alisa  1994  RUS   26:57.8  +1:57.3  62.54
 18  21  1274580 ISHIDA Masako  1980  JPN   27:03.5  +2:03.0  65.58
 19  18  3205403 CARL Victoria  1995  GER   27:04.6  +2:04.1  66.16
 78  77  3255002 JONSDOTTIR Elsa Gudrun  1986  ISL   31:12.8  +6:12.3  198.49