Ólympíufarar leggja af stað til PyeongChang

Vetrarólympíuleikarnir fara fram í PyeongChang í S-Kóreu 9. - 25. febrúar 2018. Verður það í annað sinn sem Suður-Kórea heldur Ólympíuleika, en Sumarólympíuleikarnir 1988 fóru fram í Seoul. Hluti af íslenskum þátttakendum lagði af stað til PyeongChang frá Íslandi í morgun. Á myndinni má sjá Egil Inga Jónsson landsliðsþjálfara í alpagreinum, Jón Viðar Þorvaldsson flokksstjóra, Elsu Guðrúnu Jónsdóttur keppanda í skíðagöngu kvenna og Maríu Magnúsdóttur sjúkraþjálfara. Allur hópurinn mun svo sameinast í S-Kóreu á morgun en ferðalagið er mismunandi á milli einstaklinga. Þrjú mismunandi ferðalög eru hjá hópnum og í meðfylgjandi mynd neðst í fréttinni má sjá þau.

Eftirtaldir keppendur verða fulltrúar Íslands á leikunum:
• Freydís Halla Einarsdóttir, alpagreinar kvenna – svig og stórsvig
• Sturla Snær Snorrason, alpagreinar karla – svig og stórsvig
• Elsa Guðrún Jónsdóttir, skíðaganga kvenna – 10 km F (frjáls aðferð)
• Snorri Einarsson, skíðaganga karla – sprettganga, 15km F (frjáls aðferð), 30km skiptiganga, 50km C Mst (fjöldastart, hefðbundin aðferð)
• Isak Stianson Pedersen, skíðaganga karla – sprettganga

Vetrarólympíuleikarnir verða settir föstudagskvöldið 9. febrúar nk. kl. 20:00 að staðartíma, en kl. 11:00 á íslenskum tíma. Verður setningarhátíðin sýnd í beinni útsendingu hjá RÚV. Lokahátíðin fer fram sunnudagskvöldið 25. febrúar nk. og hefst einnig kl. 20:00 að staðartíma.

Hægt verður að fylgjast vel með hópnum á meðan móti stendur í S-Kóreu. Reglulega verða fréttir hér á heimasíðunni og ýmist annað skemmtilegt efni má finna á samfélagsmiðlum sambandsins.

Instragram: skidasamband
Snapchat: skidasamband