Öðrum keppnisdegi lokið í Erzurum

Öðrum keppnisdegi Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar sem nú fer fram í Erzurum í Tyrklandi er nú lokið. Í dag áttum við fulltrúa í skíðagöngu og alpagreinum. Í skíðagöngunni var gengið með frjálsri aðferð þar sem stúlkur gengu 7,5km og drengir 10km. Hjá stúlkum hafnaði Anna María Daníelsdóttir í 35.sæti, 3 mínútum og 27 sekúndum á eftir sigurvegaranum á tímanum 22:40,0. Í drengjaflokki höfnuðu þeir Sigurður Arnar Hannesson, Arnar Ólafsson og Pétur Tryggvi Péturssoní í 46., 51. og 54.sæti.

Úrslit úr skíðagöngu má sjá hér.

Í stórsvigi drengja féll Jökull Þorri Helgason úr leik í fyrri umferð, Georg Fannar Þórðarson varð 33. í fyrri umferð 7,20 sekúndum á eftir þeim sem bestum tíma náði. Í seinni umferðinni vann Georg sig upp og endaði í 26. sæti 9.92 sekúndum á eftir sigurvegaranum.

Úrslit úr alpagreinum má sjá hér.

Á morgun miðvikudag eigum við keppendur í svigi stúlkna og snjóbrettaati drengja.

Fleiri myndir má sjá á myndasíðu ÍSÍ.