María, Hólmfríður og Sturla öll í topp 10 um helgina

María, Hólmfríður Dóra og Sturla Snær
María, Hólmfríður Dóra og Sturla Snær

Landsliðsfólk SKÍ heldur áfram að gera virkilega góða hluti í alþjóðlegum FIS mótum erlendis.

Um helgina náðu þau María Finnbogadóttir, Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir og Sturla Snær Snorrason öll að landa einu af 10 efstu sætunum í alþjóðlegum FIS mótum í Evrópu.

María Finnbogadóttir náði 6. sæti í svigi í Turnau í Austurríki, sunnudaginn 13. janúar.
Alls voru 33 þátttakendur í mótinu og hlaut María 49.40 FIS stig fyrir árangurinn, sem er hennar besti árangur á ferlinum. 
Hún bætir sig því mikið á heimslista og fer úr 73.21 í 55.15 FIS stig. 
Úrslit mótsins má sjá hér

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir náði 9. sæti í stórsvigi í Kläppen í Svíþjóð, sunnudaginn 13. janúar.
Alls voru 98 þátttakendur í mótinu og hlaut Hólmfríður 55.59 FIS stig fyrir árangurinn og bætir sig á heimslista úr 54.45 í 52.24 FIS stigum.
Úrslit mótsins má sjá hér

Sturla Snær Snorrason náði 10. sæti í svigi í Garmisch Partenkirchen í Þýskalandi, laugardaginn 12. janúar.
Alls voru 64 þátttakendur í mótinu og hlaut Sturla 32.87 FIS stig fyrir árangurinn, en hann er með 29.13 FIS stig á lista í svigi
Úrslit mótsins má sjá hér