Keppni á HM unglinga hefst á morgun

Hópurinn á æfingu í Åre
Hópurinn á æfingu í Åre

Keppni hjá okkar keppendum á HM unglinga í alpagreinum hefst á morgun. Keppt verður í stórsvigi kvenna og fer keppni fram í heimsbikarbakkanum í Åre. Allar þrjár stúlkurnar taka þátt og rásnúmer þeirra má sjá hér að neðan. Keppni hefst kl.8:30 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með lifandi tímatöku hér.

Sunnudagur 12.mars - Ráslisti fyrir stórsvig kvenna
88 - Andrea Björk Birkisdóttir
89 - María Finnbogadóttir
93 - Katla Björg Dagbjartsdóttir

Undanfarna daga hefur hópurinn æft við góðar aðstæður í og við Åre. Á fyrstu æfingu hópsins mætti sænska sjónvarpið og tók viðtal við hópinn og er hægt að sjá það hér.