Hlíðarfjall heimavöllur íslensku landsliðanna

Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttamála hjá Akureyrarbæ og Jón Viðar Þorvaldsson framkvæmdar…
Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttamála hjá Akureyrarbæ og Jón Viðar Þorvaldsson framkvæmdarstjóri SKÍ handsala samninginn.

Í vikunni var undirritaður samningur um áframhaldandi samstarf á milli Skíðasambands Íslands (SKÍ) og Akureyrarbæjar. Framlag Akureyrarbæjar til samningsins er annars vegar að útvega SKÍ skrifstofuaðstöðu fyrir starfsstöð SKÍ og hins vegar að leggja fram skíðasvæðið í Hlíðarfjalli sem heimavöll íslensku landsliðanna á skíðum. Akureyrarbær mun í samvinnu við SKÍ kappkosta að hafa aðstæður sem bestar til æfinga á hverjum tíma. Með samstarfssamningnum eru báðir aðilar að leggja sitt af mörkum til að auka enn frekar framgang skíðaíþróttarinnar á Íslandi og bæta aðstæður til iðkunnar hennar.