Helga María í 6.sæti í Oppdal

Í dag og í gær var keppt á tveimur stórsvigsmótum í Oppdal í Noregi. Tveir íslenskir keppendur voru skráðir til leiks í kvennaflokki, þær Helga María Vilhjálmsdóttir og Andrea Björk Birkisdóttir. Báða dagana endaði Helga María í 6.sæti. Í gær fékk hún 41.12 FIS punkta og í dag fékk hún 41.78 FIS punkta. Á heimslista FIS er Helga María með 37.16 FIS punkta og því örlítið frá sinni heimslistastöðu. Andrea Björk náð ekki að klára seinni ferð í gær en var í 23.sæti í dag.

Um helgina verður keppt á tveimur svigmótum á sama stað og verða þær báðar þátttakendur þar ásamt Sturla Snæ Snorrasyni.

Öll úrslit frá Oppdal má sjá hér. Að neðan má sjá úrslit dagsins.

RankBibFIS CodeNameYearNationRun 1Run 2Total TimeDiff.FIS Points
 1  3  426304 RESEN Henriette  1999  NOR   1:04.34  1:04.55  2:08.89     28.47
 2  12  426131 ENGESET Eirin Linnea  1995  NOR   1:05.02  1:04.14  2:09.16  +0.27  30.52
 3  4  426273 SAETHERENG Hannah  1999  NOR   1:04.59  1:05.39  2:09.98  +1.09  36.76
 4  9  426265 SOEFTELAND Helena Hoerte  1998  NOR   1:04.65  1:05.51  2:10.16  +1.27  38.13
 5  10  705460 JANCOVA Tereza  1999  SVK   1:04.97  1:05.45  2:10.42  +1.53  40.10
 6  2  255367 VILHJALMSDOTTIR Helga Maria  1995  ISL   1:05.22  1:05.42  2:10.64  +1.75  41.78
 7  6  506903 STRANDBERG Ebba  1998  SWE   1:05.44  1:05.57  2:11.01  +2.12  44.59
 8  15  705462 MORAVCIKOVA Sona  1999  SVK   1:07.19  1:04.91  2:12.10  +3.21  52.88
 9  13  426254 HAMNES Ingrid  1998  NOR   1:06.41  1:05.70  2:12.11  +3.22  52.95
 10  21  405172 BAKKE Bianca  2000  NED   1:07.03  1:05.66  2:12.69  +3.80  57.36
 23  29  255403 BIRKISDOTTIR Andrea Bjork  1998  ISL   1:10.55  1:07.33  2:17.88  +8.99  96.82