Hæfileikamótun í skíðagöngu - æfingaferð til Noregs

Þá er komið að skráningu fyrir æfingaferð í skíðagöngu sem verður farin til Noregs 21.-29. nóvember. Þessi ferð er í boði fyrir öll sem eru fædd 2007 - 2009.

Fyrirhugað ferðaplan:

Flug til Noregs 21.11

Gist verður í hyttum rétt við göngubrautirnar á Natrudstilen

Æft á Natrudstilen / Sjusjøen dagana 21.11- 28.11

Flug til Íslands 29.11

Sem fyrr verður Þorsteinn aðalþjálfari í ferðinni og að auki verður aðstoðarþjálfari með í för.

SKÍ óskar eftir umsóknum fararstjóra til að fara í þessa ferð.

Áætlað er að ferðin kosti milli 155.000,-kr -180.000,-kr. og skráningarfrestur er til og með 8.október.

Innifalið í verði:

Flug, gisting, matur og akstur til og frá flugvelli. SKÍ greiðir kostnað fyrir þjálfara og fararstjóra.

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000,- inn á reikning SKÍ kt. 590269-1829 reikn. 0162-26-003860 um leið og skráning fer fram.
Skáning fer fram hér: https://mot.ski.is/keppni/442

Allar nánari upplýsingar veitir Brynja, brynja@ski.is eða í síma 846-0420

Upplýsingar um ferðina verða einnig birtar á facebook síðu Hæfileikamótunar SKÍ - Skíðaganga