Fyrsta keppnisdegi á EYOF lokið

Í dag hófst keppni á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Erzurum. Stúlkurnar í alpagreinum, þær María Finnbogadóttir, Harpa María Friðgeirsdóttir, Katla Björg Dagbjartsdóttir og Sigríður Dröfn Auðunsdóttir kepptu í stórsvigi og stóðu sig með sóma. María varð í 19.sæti og með þriðja besta tímann í sínum árgangi. Hún fékk fyrir mótið 61.33 FIS punkta sem er risa bæting á heimslista FIS en í dag er María með 122.11 FIS punkta. Harpa María varð í 32.sæti, Katla Björg varð í 33.sæti og Sigríður varð í 39.sæti en þær bættu sig einnig allir á heimslista FIS.

Úrslit úr stórsvigi stúlkna má sjá hér.

Í dag var keppni með hefðbundinni aðferð í skíðagöngu og gengu drengir 7,5km á meðan stúlkur fóru 5km. Sigurður Arnar varð í 36.sæti á tímanum 20:40,2, Arnar varð í 48.sæti á tímanum 22:40,0 og Pétur Tryggvi varð í 51.sæti á tímanum 23:12,1. Anna María Daníelsdóttir varð í 38.sæti á tímanum 16:33,3. Eru þau öll að bæta sig á heimslista FIS.

Úrslit úr skíðagöngu má sjá hér.

Hægt er að fylgjast með meðal annars dagskrá og úrslitum á heimasíðu leikanna - sjá hér.

Fleiri myndir má sjá á myndasíðu ÍSÍ.