Frábærri samæfingu í skíðagöngu lokið

A-landsliðið í skíðagöngu var allt á staðnum
A-landsliðið í skíðagöngu var allt á staðnum

Á sunnudaginn lauk samæfingu í skíðagöngu sem fór fram í Reykjavík. Um 25 iðkendur tóku þátt í samæfingunni frá Reykjavík, Ísafirði, Hólmavík, Akureyri og Ólafsfirði. Gist var í Bláfjöllum og ýmist æft þar eða í bænum. Allir úr A og B landsliðum voru á æfingunni ásamt Vegar Karlstrom, landsliðsþjálfara í skíðagöngu. Almennt gengu æfingarnar virkilega vel og fóru allir þátttakendur sáttur heim. Næsta samæfing fer fram á Akureyri í ágúst og verður sú samæfing auglýst á næstu dögum.