FIS æfingabúðir í skíðagöngu

Um þessar mundir eru þrír íslenskir skíðagöngumenn í æfingabúðum á vegum FIS á Ítalíu. Í fyrra tók SKÍ þátt í fyrsta skipti í sambærilegu prógrami en þetta er hluti af þróunarstarfi FIS fyrir litlu þjóðirnar. FIS býður tveimur iðkendum á aldrinum 16-20 ára ásamt þjálfara frá hverju landi. Æfingabúðirnar fara fram í Val di Fiemme en þar eru frábærar aðstæður til æfinga. Um 15 þjóðir taka þátt en æfingabúðirnar standa yfir frá 3.-12.september. Þjálfarar frá FIS eru á staðanum og sjá um æfingarnar en allar þjóðir þurftu einnig að senda þjálfara með, er það hugsað sem námskeið fyrir þjálfarana í leiðinni.

Um er að ræða sumaræfingar og því ekkert farið á snjó. Mikið er hlaupið, farið á styrktaræfingar og svo auðvitað á hjólaskíði. Lagt er áherslu á undirbúning fyrir veturinn og að byggja upp þrek, styrk og tækni hjá þátttakendum. Á hverju kvöldi eru svo þjálfarafundir þar sem farið er yfir daginn og prógram morgundagsins.

Þátttakendur frá Íslandi:
Dagur Benediktsson - Iðkandi
Sigurður Arnar Hannesson - Iðkandi
Vadim Gusev - Þjálfari

Í gær og í dag tóku þeir Dagur og Sigurður Arnar þátt í hjólaskíðamóti í Trento - Monte Bondone á Ítalíu. Mótið er hluti af heimsbikarmótaröðinni á hjólaskíðum og tóku þeir þátt í "junior" flokknum. Í gær var 165 metra sprettganga og í dag 4,7 km ganga með hefðbundinni aðferð. Hér má sjá úrslit úr mótinu.

Hér að neðan er hægt að sjá nokkrar myndir úr ferðinni