Elsa Guðrún og Sævar sigruðu í hefðbundinni göngu

Elsa Guðrún kemur í mark í hefðbundinni göngu
Elsa Guðrún kemur í mark í hefðbundinni göngu

Skíðamót Íslands hélt áfram í dag og var keppt í göngu með hefðbundinni aðferð í Bláfjöllum. Samhliða mótinu var Bláfjallagangan sem er hluti af Íslandsgöngunni og voru því um 110 keppendur í dag. Genginn var einn 10km hringur en í Bláfjallagöngunni voru farnir tveir og því samanlagt 20km. Aðstæður voru erfiðar en sporið var blaut og því frekar þungt að ganga og lentu sumir keppendur í vandræðum með skíðin í dag. 

Sævar Birgisson og Elsa Guðrún Jónsdóttir sigruðu og urðu Íslandsmeistarar í göngu með hefðbundinni aðferð. Segja má að sigurinn hafi aldrei verið í hættu hjá hvorugum þeirra en þau sýndu bæði mikla yfirburði í dag.

Konur
1. Elsa Guðrún Jónsdóttir SÓ
2. Sólveig María Aspelund SFÍ
3. Hómfríður Vala Svavarsdóttir SFÍ 

Karlar
1. Sævar Birgisson SÓ
2. Albert Jónsson SFÍ 
3. Vadim Gusev SKA

18-20 ára stúlkur
1. Sólveig María Aspelund SFÍ 
2. Kristrún Guðnadóttir Ullur 

18-20 ára piltar
1. Albert Jónsson SFÍ

16-17 ára stúlkur
1. Harpa Sigríður Óskarsdóttir Ullur

16-17 ára piltar
1. Sigurður Arnar Hannesson SFÍ
2. Dagur Benediktsson SFÍ
3. Pétur Tryggvi Pétursson SFÍ

Hér má sjá öll úrslit dagsins. 

Á morgun fer fram boðganga og hefst hún kl. 10:30 í Bláfjöllum. í alpagreinum þurfti að fresta keppni dagsins vegna tæknilegra vandamála framan af en síðar veðri. Á morgun er planið að keppa í svigi og stórsvigi í Skálafelli og hefst stórsvigið kl. 9 í fyrramálið, svigið er svo áætlað eftir að keppni í stórsviginu lýkur.