Eftirlitsmannanámskeið í alpagreinum

Skíðasamband Íslands mun standa fyrir eftirlitsmannanámskeiði í alpagreinum laugardaginn 4.febrúar. Námskeiðið fer fram á Akureyri og hefst að loknu bikarmóti í 12-15 ára flokki sem fram fer á Dalvík. Þeir sem klára námskeiðið hljóta réttindi til að vera eftirlitsmenn á bikarmótum í flokki 12-15 ára í alpagreinum. Réttindin gilda í fimm ár og þarf að endurnýja reglulega til að viðhalda réttindunum. Eftirlitsmenn fá borgað fyrir sín störf samkvæmt gjaldskrá SKÍ.

Eftir námskeiðið verður verkefnum vetrarins útdeilt til eftirlitsmanna sem hafa lokið námskeiðinu og sótt um verkefni.

Dagskrá:
4.febrúar - Akureyri
18:00-21:00 - Námskeið

Efni á námskeiði:

  • Hlutverk eftirlitsmanna
  • Mótsreglur
  • Öryggismál
  • Reglubreytingar

Kennari: Smári Kristinsson - Alþjóðlegur FIS eftirlitsmaður

Verð: 12.500 kr. á hérað óháð fjölda. Greiðsla þarf að hafa borist fyrir námskeiðið.

  • Innifalið: Námskeiðsgögn og kvöldsnarl.

Skráning þarf að berast í síðasta lagi föstudaginn 3.febrúar á netfangið ski@ski.is.