Bjarki keppti í stórsvigi á ÓL ungmenna

Keppni fór fram í stórsvigi pilta á Vetrarólympíuleikum ungmenna í Lillehammer fyrr í dag. Bjarki Guðjónsson tók þátt fyrir Íslands hönd. Samanlagt skíðaði Bjarki ferðirnar tvær á 3:00,09 og endaði í 35. sæti. Alls tóku 60 drengir þátt í keppni dagsins. Sigurvegari keppninnar var Bandaríkjamaðurinn River Radamus. River hefur nú tryggt sér þrenn gullverðlaun, áður hafði hann sigrað risasvigið og alpatvíkeppnina. Heildarúrslit má sjá hér

Á morgun fimmtudag keppir Dagur Benediktsson í 10 km göngu og Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppir í svigi stúlkna.