Barnamót erlendis í alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og freestyle skíðum

SKÍ vill vekja athygli á barnamótum sem haldin eru erlendis í alpagreinum, skíðagöngu, snjóbrettum og freestyle skíðum. 

Öllum er frjáls að sækja um að fara á þessi mót en hafið í huga að þessi mót eru bara ætluð þeim sem eru best í sínum árgangi og ætla sér lengra í íþróttinni. 

SKÍ mun aðeins skrá iðkendur á mótin en mun annars ekki hafa neina aðra aðkomu að þessum mótum. 

Ef margar umsóknir berast þá mun afreksstjóri SKÍ ásamt nefndunum úthluta mótum til umsækjenda. 

Alpagreinar: FIS Alpine Skiing - Calendar (fis-ski.com)

Skíðaganga: FIS Alpine Skiing - Calendar (fis-ski.com)

Snjóbretti: FIS Alpine Skiing - Calendar (fis-ski.com)

Freestyle skíði: FIS Alpine Skiing - Calendar (fis-ski.com)

Umsóknir berist til ski@ski.is