Atomic Cup mótaröðinni lokið

Graham Black og Erla Ásgeirsdóttir urðu samanlagðir meistarar á Atomic Cup
Graham Black og Erla Ásgeirsdóttir urðu samanlagðir meistarar á Atomic Cup

Seinnipartinn í dag fór fram stórsvig á Atomic Cup mótaröðinni en það var þriðja og síðasta mótið á mótaröðinni. Seinka þurfti ræsingu um 1 klst. vegna þoku sem lá yfir Hlíðarfjalli. Þegar keppni hófst var skyggni orðið mun betra og gekk keppnin vandræðalaust fyrir sig.

Stórsvig - Konur
1. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir 
2. Katla Björg Dagbjartsdóttir 
3. Madison Muxworthy

Heildarúrslit má sjá hér.

Stórsvig - Karlar
1. Tai Juneau
2. Sturla Snær Snorrason
3. Graham Black

Heildarúrslit má sjá hér.

Samanlagðir meistarar á Atomic Cup mótaröðinni
Konur: Erla Ásgeirsdóttir
Karlar: Graham Black