Andrésar andar leikarnir 2018

43. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 18.-21. apríl 2018.

Í ár munu 860 keppendur á aldrinum 4-15 ára taka þátt í Andrésar andar leikunum í Hlíðarfjalli, og gera þá um leið að stærsta skíðamóti landsins. Börnunum fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og systkini og má því gera ráð fyrir að um 2500-3000 manns sæki leikana.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna.

Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Í ár eru 4 ára börnum boðið að taka þátt á leikunum í fyrsta skipti. Munu þau taka þátt í leikjabraut þar sem allt snýst um að vera með og hafa gaman, en ekki að sigra.  Andrésarleikarnir eru fjölskylduhátíð skíðamanna og því hefur oft verið óskað eftir því að yngri systkini fái að taka þátt. Með þessu er verið að koma til móts við þá ósk.

Aðstæður í Hlíðarfjalli eru nú með góðu móti þó snjór sé farinn að minnka eftir hlýjindi undanfarna daga. Búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár.  Nú þegar hafa um 880 börn verið skráð frá 16 félögum á Íslandi, en einnig er búist við nokkrum gestum frá Noregi. Flestir iðkendur koma frá heimamönnum í SKA eða 161 keppandi. Flestir aðkomu krakkar koma hinsvegar frá Ármanni í Reykjavík; 105 einstaklingar. 

Þátttaka í skíðagöngu hefur aldrei verið jafn mikil á leikunum eins og í ár, eða 126 börn.

Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri á síðasta vetrardag, miðvikudagskvöldið 18. apríl að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda frá íþróttasvæði KA. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir.  Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar eru í lok hvers keppnisdags.

Líflegur fréttaflutnignur verður á Facebook síðu leikanna auk þess sem úrslit og fleiri fréttir verða birt á www.skidi.is, heimasíðu Skíðafélags Akureyrar.