Andlát - Þórir Jónsson

Látinn er Þórir Jóns­son fram­kvæmda­stjóri og fyrrverandi formaður Skíðasamband Íslands á nítug­asta og fyrsta ald­ursári.

Þórir fædd­ist í Reykja­vík 22. ág­úst 1926, son­ur Jóns Ragn­ars Jóns­son­ar skipa­smiðs og Sig­ríðar Hann­es­dótt­ur verka­konu. Hann lauk námi í bif­véla­virkj­un 1946. Þórir var um­svifa­mik­ill meðal ann­ars í iðnaði, viðskipt­um og íþrótt­um. Þórir stofnaði og rak véla­verk­stæðið Þ. Jóns­son og Co., hann rak um margra ára skeið For­dum­boðið Svein Eg­ils­son og var einn helsti bar­áttumaður stofn­un­ar skipa­fé­lags­ins Bifrast­ar, sem ger­breytti bílainn­flutn­ingi til Íslands. Þá sat hann í stjórn Reykja­prents sem stóð að út­gáfu Vís­is og DV um ára­bil.

Þórir keppti fyr­ir Íslands hönd í svigi og bruni á vetr­arólymp­íu­leik­un­um í St. Mo­ritz árið 1948, fyrstu vetr­arólymp­íu­leik­un­um sem Ísland keppti á. Hann var virk­ur bar­áttumaður framþró­un­ar á aðbúnaði og um­gjörð til skíðaiðkun­ar. Einnig gegndi Þórir ýms­um fé­lags­störf­um fyrir íþróttahreyfinguna; var formaður skíðadeild­ar KR og formaður Skíðasam­bands Íslands. Hann var sæmd­ur heiðurs­stjörnu Skíðasam­bands Íslands og gull­merki KR með lár­viðarsveig fyr­ir störf sín í þágu skíðaíþrótt­ar­inn­ar.

Skíðasamband Íslands vottar eftirlifandi eig­in­konu og afkomendum samúð sína.