Þjálfaranámskeið í skíðagöngu

8.-10. desember

Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir þjálfara í skíðagöngu helgina 8.-10. desember. Notast verður við norskt námsefni og mun námskeiðið gilda til fyrsta stigs þjálfunnar réttinda (Þjálfari 1).
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík. 

Dagskrá með fyrirvara um breytingar:
Föstudagur 8. des kl. 18-22 - ÍSÍ laugardal
Laugardagur 9. des kl. 09-19 - Bláfjöll
Sunnudagur 10. des kl. 09-14:30 - Bláfjöll

Leiðbeinendur verða Kari Morkved Sylten (NOR) og Ólafur H. Björnsson. 

Þátttökugjald er 20.000 kr. og greiðist fyrir námskeið. Skráning er á netfangið sigurgeir@ski.is og er skráningarfrestur til og með 1.desember. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur.

Nánari upplýsingar veitir Sigurgeir Halldórsson á netfanginu sigurgeir@ski.is.