Þjálfaranámskeið á snjóbrettum

13.-15. október

Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir þjálfara á snjóbrettum helgina 13.-15. október. Megin áhersla námskeiðsins verður á þjálfunarháttum, hreyfanleika og undirbúningsþjálfun. Í vetur verður haldið framhaldsnámskeið á snjó og munu þeir sem hafa lokið báðum námskeiðum öðlast réttindi sem Snjóbrettaþjálfari 1. Öllum er frjálst að sækja námskeiðin, annað eða bæði.
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík og verður það í formi fyrirlestra og verklegra æfinga.

Dagskrá
Föstudagur 13. okt kl. 19-22 í fundarsal ÍSÍ
Laugardagur 14. okt kl. 09-16:30 í fundarsal ÍSÍ og verklegt
Sunnudagur 15. okt kl. 09-17 í fundarsal ÍSÍ og verklegt

Leiðbeinandi verður Markus Rehn (NOR) og mun námskeiðið fara fram á ensku.

Námskeiðið er opið öllum, hvort sem þeir hafa lokið öðrum þjálfaranámskeiðum eða ekki.

Þátttökugjald er 20.000 kr. og greiðist fyrir námskeið. Skráning er á netfangið sigurgeir@ski.is og er skráningarfrestur til og með 1.október. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar á þátttakendur eftir að skráningarfresti lýkur.

Nánari upplýsingar veitir Sigurgeir Halldórsson á netfanginu sigurgeir@ski.is.