Dómaranámskeið á snjóbrettum

1.- 2. desember
Skíðasambands Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði á snjóbrettum. Námskeiðið gagnast einnig sem þjálfaranámskeið en öll FIS/TTR/bikarmót vetrarins verða dæmd útfrá upplýsingum af þessu námskeiði. Á hvert mót þarf allt að 4 dómara, SKÍ hvetur því alla til að sækja námskeiðið hvort sem það eru þjálfarar, aðstandendur eða áhugasamir snjóbrettamenn.  Námskeiðið fer fram helgina 1.-2.desember 2018 á Akureyri og verður frá kl. 09:00-17:00 báða dagana. Lagt er upp með að námskeiðið verði tvískipt, fyrirlestrar fyrri daginn og verklegar æfingar á snjó á þeim seinni.

Að námskeiði loknu hljóta allir réttindi hjá bæði FIS og TTR mótaröðinni.

  • FIS C dómararéttindi
  • TTR C dómararéttindi

Kennarinn á námskeiðinu verður Jacek Milas og er frá Póllandi. Hann hefur FIS A dómararéttindi og hefur m.a. reynslu af dómgæslu í heimsbikar. Námskeiðið mun fara fram á ensku. Námskeiðið verður haldið á skrifstofu SKÍ, annari hæð í íþróttahöllinni, og í Hlíðarfjalli ef aðstæður leyfa.
Verð: 10.000 kr. á mann. Greiðsla þarf að hafa borist fyrir námskeiðið.

  • Innifalið: Námskeiðsgögn og hádegismatur báða daga ásamt kaffi.

Skráning þarf að berast í síðasta lagi 20.nóvember á netfangið sigurgeir@ski.is.
Nánari dagskrá verður send á alla þáttakendur.