Unglingameistarmót Íslands hefst á föstudaginn

Unglingameistaramót Íslands (UMÍ) á skíðum og snjóbrettum hefst formlega á föstudaginn með setningu. Mótið fer fram á Akureyri þetta árið og er það fyrir iðkendur á aldrinum 12-15 ára. Keppt er í alpagreinum og skíðagöngu eins og undanfarin ár en í fyrsta skipti í sögu mótsins verður keppt á snjóbrettum. Samhliða keppni í skíðagöngu fer fram Hermannsgangan sem er hluti af Íslandsgöngunni og verður hún laugardaginn 19.mars. Íslandsgangan er röð skíðagöngumóta sem trimmnefnd Skíðasambands Íslands hefur efnt til árlega síðan 1985. Henni er ætlað að höfða til allra sem áhuga hafa á skíðaíþróttum, bæði þeim sem leitast eftir ánægjulegri og hollri útiveru og eins metnaðarfyllra keppnisfólki. 

Veðurspá fyrir helgina á norðurlandi er nokkuð góð og því er um að gera að kíkja á allt sem verður í gangi um helgina í Hlíðarfjalli, hvort sem það er að fylgjast með ungum og efnilegum iðkendum í alpagreinum, skíðagöngu eða snjóbrettum, nú eða að skella sér í gönguskíðin og taka þátt í Hermannsgöngunni. 

Dagskrá og frekari upplýsingar um UMÍ má sjá hér.
Dagskrá og frekari upplýsingar um Hermannsgönguna má sjá hér.