Þrek- og styrktartest hjá landsliðum alpagreina

Það var tekið á því í styrktarprófinu
Það var tekið á því í styrktarprófinu

Nýlega voru landslið í alpagreinum valin og eitt af kröfum þess að vera í landsliðum er að fara í þrek- og styrktartest. Í gær, sunnudag, fóru bæði A og B landslið í testið og gekk það vel. Landsliðin æfa af krafti þessa dagana en undirbúningstímabilið er í fullum gangi. Næsti vetur verður stór þar sem um Ólympíuár er að ræða og verður fyrsta landsliðsferð á snjó í september.