Sturla Snær og Helga María sigruðu í svigi

Sturla Snær Snorrason í sviginu í dag
Sturla Snær Snorrason í sviginu í dag

Rétt í þessu kláraðist svig á Skíðamóti Íslands. Aðstæður voru frekar krefjandi en þoka var á mótsstað en færið þó þokkalegt. Keppnin var nokkuð spennandi en að lokum sigruðu þau Helga María Vilhjálmsdóttir og Sturla Snær Snorrason nokkuð örugglega. Var þetta annar Íslandsmeistaratitill hjá Helgu Maríu í svigi en hún vann einnig árið 2013. Sturla Snær Snorrason var einnig að vinna sinn annan titil en hann náði að verja titilinn frá því í fyrra.

Bein útsending var frá mótinu og hægt er að sjá útsendingar hér að neðan.
Svig - Fyrri ferð
Svig - Seinni ferð

Konur
1. Helga María Vilhjálmsdóttir
2. Freydís Halla Einarsdóttir
3. Andrea Björk Birkisdóttir

18-20 ára stúlkur
1. Andrea Björk Birkisdóttir
2. Soffía Sóley Helgadóttir
3. Fanney Ísaksdóttir

16-17 ára stúlkur
1. Katla Björg Dagbjartsdóttir
2. Harpa María Friðgeirsdóttir
3. Hjördís Kristinsdóttir

Karlar
1. Sturla Snær Snorrason
2. Magnús Finnsson
3. Einar Kristinn Kristgeirsson

18-20 ára drengir
1. Jón Gunnar Guðmundsson
2. Björn Ásgeir Guðmundsson
3. Bjarki Guðjónsson

16-17 ára drengir
1. Georg Fannar Þórðarson
2. Jóhann Ingvi Halldórsson

Heildarúrslit má sjá hér.